Matvæla- og næringarfræðafélag Íslands

Matvæladagur

15. október 2004
Rannsóknir á sviði matvæla- og næringarfræði
mni
meira...
 

 
Námskeið í boði

Rannsóknaþjónustan Sýni
Endurmenntun HÍ
Rf
Iðntæknistofnun
 

 
Myndir

Haustfagnaður 2003
Matvæladagur 2002
Árshátíð 2002
Matvæladagur 2001
Skógrækt 2001
 

 
Athyglisvert

Food Info Net
 

 

Fréttir

3. desember 2004

Vínsmökkun

VínflöskurVínsmökkunarkvöld fræðslunefndar var haldið föstudaginn 3. desember kl. 20.00 í húsnæði Vífilfells. Þemað var samspil víns og matar, þ.e. af hverju við veljum ákveðin vín með hverjum mat, með áherslu á jólamatinn.
Einnig fengum við að smakka vín frá framleiðanda ársins í Bandaríkjunum árið 2003. Vínkynnir var Haraldur Halldórsson, Sommelier (vínþjónn) hjá Vífilfelli (Harry).

15. október 2004

Matvæladagur

mni verður 15. október 2004 á Nordica Hótel. Efni dagsins er Rannsóknir á sviði matvæla- og næringarfræði. Á svipuðum tíma, eða frá 14 - 15. október er einnig í gangi á Nordica Hotel ráðstefnan Safe and wholesome food (sjá www.foodsafety.is) en henni lýkur um það leyti sem matvæladagurinn byrjar. Á fimmtudagseftirmiðdag er málþing samtaka heilbrigðisstétta (www.heibrigdisstettir.is), sem ber titilinn Er teymisvinna í heilbrigðiskerfinu tímasóun? Á laugardeginum þann 16. október er svo málþing Félags fagfólks um hjarta- og lungnaendurhæfingu um áhrif næringar í meðferð og endurhæfingu hjarta- og lungnasjúklinga. Það má því segja að það er nóg að gerast um þessar mundir í ráðstefnum og fyrirlestrum fyrir matvæla- og næringarfræðinga.

12. september 2004

Útivist: Heiðmerkurganga

Í síðustu gönguferð sumarsins njótum við haustlitanna í Heiðmörk og göngum eftir Búrfellsgjánni. Þetta er létt og þægileg ganga. Við vonum að haustlaufið verði ekki allt niðurrignt áður en okkur gefst tækifæri til að njóta. Áhugasamir hittist á bílastæðinu við austurenda Vífilstaðahlíðar, þar sem vegurinn beygir í átt að Elliðavatni (sjá neðst á kort) kl.10 og lagt verður af stað kl: 10:15. Gangan tekur ca. 1 til 2 tíma.

15. ágúst 2004

Útivist: Gönguferð á Móskarðshnjúka

Útivistarnefnd stendur fyrir gönguferð á Móskarðshnjúka sunnudaginn 15. ágúst næstkomandi. Hnjúkarnir eru þrír og er sá hæsti um 807 m. Hækkunin er um 650 m og ætti gangan á hæsta topp að taka um 2 tíma. Ef vilji og þrek er fyrir hendi þá er hægt að ganga á milli toppanna en það ætti að taka um 30-40 mín til viðbótar. Eins og síðast verður hist á bílastæðinu hjá Shell við Vesturlandsveg (neðan við Ölgerðina) kl 10. Síðan er keyrt upp á Þingvallaheiði að Skeggjastöðum. Farið verður upp frá göngubrú yfir Skarðsá skammt frá Skeggjastöðum.

7. maí 2004

Aðalfundur

Aðalfundur MNÍ var haldinn 7. maí síðastliðinn. Voru meðal annars rædd útgáfumál og möguleg innganga félaga í Félagi matarfræðinga í MNÍ. Grímur Ólafsson hjá Umhverfisstofnun, var kosinn í stjórn, og kemur hann í stað Gústafs Hjálmarssonar.

19. apríl 2004

Íþróttanefnd MNÍ

Íþróttanefnd hefur hafið störf innan MNÍ. Mun nefndin standa fyrir hjólreiðum, göngum og jafnvel sundferðum. Gert er ráð fyrir að fara einu sinni í mánuði, frá maí fram í september og miða við annan sunnudagí hverjum mánuði. Hver atburður verður þó sérstaklega auglýstur. Það eru þeir Pétur Helgason og Grímur Ólafsson sem eru höfuðpaurar nefndarinnar

13. febrúar 2004

Skiladagur nefnda

Skiladagur nefnda var 13 febrúar en þá skiluðu nefndir 2003 af sér stuttri skýrslu og gögnum, og nefndir fyrir Matvæladag 2004 tóku við. Fór þetta allt saman fram á veitingastaðnum Caruso, og má segja að margar ágætar hugmyndir hafi litið dagsins ljós í umræðum kvöldsins.

26. janúar 2004

Matvæladagur 2004 - óskað eftir nefndarmönnum

Stjórn MNÍ hefur ákveðið að efni Matvæladags í ár verði Matvælarannsóknir. Óskað er eftir áhugasömu fólki í eftirfarandi nefndir: Framkvæmdanefnd matvæladags, ritnefnd blaðsins Matur er mannsins megin, verðlaunanefnd Fjöreggs og skemmtinefnd. Fyrri nefndarmenn og nýir velkomnir!

5. desember 2003

Vínsmökkunarkvöld fræðslunefndar - frestað!

VínflöskurVínsmökkunarkvöldi fræðslunefndar hefur verið frestað vegna ónógrar þátttöku. Til stendur að reyna aftur eftir áramót enda er líklegt að jólaundirbúningurinn dragi nokkuð úr þátttöku á svona atburði í desember. Þangað til geta félagsmenn rifjað upp vín-landafræðina á vef ÁTVR.

 

21. október

Fyrirlestrarnir eru komnir á vefinn

Fyrirlestrar Matvæladagsins 2003 eru nú aðgengilegir á pdf-formi hér á vef MNÍ ásamt öðrum upplýsingum. Smellið hér...

17. október 2003

Pottagaldrar fengu Fjöreggið

Fjöregg MNÍ var veitt Pottagöldrum að þessu sinni, en þetta er í ellefta skiptið sem félagið veitir þessa viðurkenningu fyrir lofsvert framtak á matvælasviði. Dómnefndin var einhuga um að Pottagaldrar ættu Fjöreggið skilið fyrir kryddvörulínu sína og markaðssetningu á henni.


Matvæladagur MNÍ

Matvæladagur MNÍ 2003 var haldinn á Grand Hótel Reykjavík föstudaginn 17. október. Þótti dagurinn heppnast vel og var þátttaka frábær eins og alltaf. Yfirskrift ráðstefnunnar var Breytingar á mataræði - hvað býr að baki? og sköpuðust líflegar umræður í lok fyrirlestra.

Matur er mannsins megin

Á hverju ári gefur MNÍ út fréttabréf sitt, Matur er mannsins megin, í tengslum við Matvæladaginn. Nú er hægt að nálgast blaðið í ár hér á heimasíðunni.
Matur er mannsins megin 2003 (1427KB)