Fræðslunefnd MNÍ er í samstarfi með Matvælahóp Stjórnvísi um fræðslufundi er varða matvæla- og næringarfræði
og/eða matvælafyrirtæki. Markhópar eru allar fagstéttir á matvæla- og næringarsviði, sem og stjórnendur matvælafyrirtækja.
Fundardagar eru annan þriðjudag í mánuði kl 15:30.
Hér má sjá dagskrá vetrarins 2008-2009:
Dagskrá vor 2009
10/03/09 Aukefni í matvælum
12/05/09 Næring sérhópa (t.d. aldraða)
Fræðslufundir haust 2008
11. nóvember 2008 - "Umbúðir matvæla"
Fyrirlesari
Grímur Ólafsson matvælafræðingur og heilbrigðisfulltrúi hjá Heilbrigðiseftirliti Hafnarfjaðar- og Kópavogssvæðis.
Nánar um fundarefnið
Erindið fjallar um tegundir umbúða fyrir matvæli sem skapa mesta áhættu fyrir neytandann. Erindið er kynning á verkefni sem unnið var hjá Livsmedelsverket í Uppsölum í Svíþjóð nóv. 2007- jan. 2008. Verkefnið gekk út á að notast við þau gögn sem fyrir eru, s.s. greinar úr fagritum, skýrslur, fjölmiðla og tilkynningar sem bárust í gegnum viðvörunarkerfi Evrópu (RASFF), til að fá yfirsýn yfir hvaða efni (úr umbúðum) er að finna í matvælum og forgangsraða þeim með tilliti til áhættu. Áætla váhrif (exposure) helstu efna með hjálp neyslukannana. Síðan eru eiturefnafræðileg gögn og/eða hámarksgildi notuð til að framkvæma áhættumat.
Fundarstaður
Rannsóknarstofan Sýni ehf., Lynghálsi 3 , Reykjavík. Gengið er inn í húsnæði Sýni vinstra megin.
Glærur
Umbúðir matvæla
07. október 2008 - "Þróunarvettvangur matvæla"
Fyrirlesari
Ragnheiður Héðinsdóttir, matvælafræðingur hjá Samtökum iðnaðarins
Nánar um fundarefnið
Þróunarvettvangur á sviði matvæla er samstarfsvettvangur framleiðenda, rannsókna- og þjónustuaðila, neytenda, stjórnvalda, fjármögnunaraðila, og annarra sem koma að matvælamálum. Markmiðið samstarfsins er að efla nýsköpun í matvælaiðnaði með hollustu að leiðarljósi. Þróunarvettvangurinn var formlega stofnaður í maí síðastliðnum og starfar að fyrirmynd og í samstarfi við Evrópuvettvanginn "Food for Life" og sambærilega vettvanga í öðrum Evrópulöndum. Á fundinum verður sagt frá starfsemi vettvangsins.
Fundarstaður
Samtök iðnaðarins, Borgartúni 35
Glærur
Þróunarvettvangur á sviði matvæla
Dagskrá matvælahópsins á síðasta starfsári 2007-2008