Matvæla- og næringarfræðafélag íslands

Efld gæðastjórnun á ferskum fiski með bættri vörustjórnun og rekjanleika frá veiðum og til neytenda
Frá: 30 júní 2010 15:00
 Til: 30 júní 2010 16:00


Doktorsvörn í matvælafræði frá Matvæla- og næringarfræðideild Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands.

Efld gæðastjórnun á ferskum fiski með bættri vörustjórnun og rekjanleika frá veiðum og til neytenda.

Miðvikudaginn 30. júní nk. fer fram doktorsvörn við Matvæla- og næringarfræðideild Háskóla Íslands. Þá ver Mai Thi Tuyet Nga doktorsritgerð sína „Efld gæðastjórnun á ferskum fiski með bættri vörustjórnun og rekjanleika frá veiðum og til neytenda.“ (Enhancing quality management of fresh fish supply chains through improved logistics and ensured traceability).

Andmælendur eru dr. Morten Sivertsvik, rannsóknastjóri við Nofima í Stavanger, og dr. Hjörleifur Einarsson, prófessor við Háskólann á Akureyri. Leiðbeinendur og í doktorsnefnd voru Sigurjón Arason, dósent við Matvæla- og næringarfræðideild Háskóla Íslands og yfirverkfræðingur hjá Matís ohf., dr. Gunnar Stefánsson, dósent við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild Háskóla Íslands, dr. Sigurður G. Bogason, sérfræðingur við Háskóla Íslands, og dr. Sveinn Margeirsson, sviðstjóri hjá Matís ohf.

Dr. Ingibjörg Gunnarsdóttir, prófessor og varadeildarforseti Matvæla- og næringarfræðideildar, stjórnar athöfninni sem fer fram í sal 105 á Háskólatorgi og hefst kl. 15:00.

Ágrip úr rannsókn

Markmið verkefnisins var að efla gæðastjórnun á ferskum fiski með betri skipulagningu og endurbættum rekjanleika frá veiðum og til neytenda.  Hluti af rannsóknunum var að fá yfirlit yfir þekkingu forstöðumanna fyrirtækja sem tengjast sjávarútvegi á rekjanleika og kostnaðarmeðvitund þeirra á vali flutningaleiða og umbúða við ákvörðunartöku um val  á flutningaferlum fyrir sjávarafurðir. Greining flutningaferla var nauðsynlegur hluti verkefnisins til þess að fá heildaryfirlit yfir stöðu greinarinnar og flutningaferlanna. Niðurstaða greiningarinnar leiddi í ljós hvaða hlekki aðfangakeðjunnar væri hægt að bæta m.t.t. geymsluþols, verklags, búnaðar, umhverfisáhrifa o.fl. Í verkefninu var rannsakað hvernig hitastig þróast í gegnum flutningakeðjuna bæði fyrir flug og sjó; flakavinnslu, forkælingu, áhrif mismunandi umbúða, virkni geymslna og gáma og einnig við tilfærslur vöru í keðjunni.  Niðurstöður þessara verkþátta verkefnisins voru notuð til að meta hitaálag, sem afurðirnar urðu fyrir í ferlunum og notaðar til að spá fyrir um geymsluþol.  Afrakstur verkefnisins verður notaður við að taka ákvarðanir um hvaða ferla eigi að lagfæra í aðfangakeðjunni svo að það komi að mestu gagni við bestun á heildarferlinu.  

Kostir og gallar flug- og sjóflutnings fyrir ferskan fisk voru greindir. Niðurstöður hitakortlagningar sýndu fram á mun stöðugra hitastig í gámaflutningi með skipum en með flugflutningi.  Einkum er hætta á hitaálagi í flugflutningskeðjum þegar vara flyst milli ólíkra hlekkja kælikeðjunnar. Aðrir þættir aðfangakeðjunnar, sem geta haft áhrif á gæði og geymsluþol ferskfisks er forkæling fyrir pökkun, staðsetning kassa á bretti í tilfelli illa hitastýrðra kælikeðja og lengd keðjanna.  

TTI (Time Temperature Indicators) var einnig greint í verkefninu þar sem búnaður var prófaður fyrir ferskar fiskafurðir og notkun hans til að meta gæðamörk afurða. Gerðar voru prófanir á TTI í geymslutilraunum til að sannreyna hvort hraði gæðabreytinga afurða væru í samræmi við virkni TTI búnaðarins.

Doktorsritgerðin er byggð á sex vísindagreinum, þar af er ein grein nú þegar birtar í alþjóðlegu vísindariti og þrár aðrar samþykktar.

Sjávarútvegsskóli Háskóla Sameinuðu þjóðanna veitti Mai Thi Tuyet Nga námsstyrk og Matís ohf. veitti rannsókn hennar aðstöðu. Rannsóknin tilheyrði verkefnunum CHILL-ON (project no. FP6-016333-2) styrkt af 6. rammaáætlun Evrópusambandsins og Hermun Kæliferla sem er styrkt af AVS rannsóknarsjóði.

Um doktorsefnið

Mai Thi Tuyet Nga er fædd 23. desember 1971 í Víetnam. Hún lauk B.Sc. gráðu við  Department of Aquatic Products Processing Technology, Kaliningrad State Technical University (KGTU) í Rússlandi árið 1995 og M.Sc. gráðu við Faculty of Aquatic Products Processing, Nha Trang University (NTU) í Víetnam árið 2000.  Mai Thi Tuyet Nga hefur verið kennari í matvælafræði við Nha Trang University síðan 1996.  Hún er gift Tran Quang Hung og þau eiga tvær dætur, Tran Mai Linh og Tran Mai Khanh Huyen.


ATBURÐIR | Dagatal
Sjávarútvegsráðstefna

Aukin nýting og verðmætasköpun úr fiskpróteinum - doktorsvörn frá HÍ

Matvæladagur MNÍ 2010

MNÍ | Matvæla- og næringarfræðafélag Íslands | Pósthólf 8941 | 128 Reykjavík | Sími 863 6681 | Netfang: